Kátir Piltar munu koma fram á listahátiðinni "Heima" í Hafnarfirði, síðasta dag vetrar, 23. apríl 2014. Lokahnykkur þessarar eins dags listahátíðar verður í Fjörukránni en þar verður "rokktraktorinn Kátir Piltar" ræstur .......... eða kannski svona meira látinn renna af stað og svo skellt í gír í miðri brekkunni þegar hraðinn er orðinn nægur. Endilega látið ekki þennan tímamótagjörning frm hjá ykkur fara og látið alla vini og velunnara vita af þessari uppákomu með góðum fyrirvara.